Aron og Jóhann byrja báðir

Jóhann Berg Guðmundsson og Aron Einar Gunnarsson eru í eldlínunni …
Jóhann Berg Guðmundsson og Aron Einar Gunnarsson eru í eldlínunni í dag. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Aron Einar Gunnarsson og Jóhann Berg Guðmundsson eru í byrjunarliðinu hjá sínum liðum í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, en þeir eru báðir í eldlínunni klukkan 15.

Jóhann Berg og félagar í Burnley fá Brighton í heimsókn. Burnley er í næst neðsta sæti deildarinnar með níu stig en Brighton er í 10. sætinu með 21 stig.

Aron Einar og félagar í Cardiff fá Southampton í heimsókn. eru í 16. sæti með 11 stig en Southampton er í 18. sæti með níu stig, eins og Burnley.

Mbl.is fylgist með gangi mála í leikjunum sem hefjast klukkan 15 HÉR.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert