Aðeins 15 leikfærir hjá City

Pep Guardiola ræðir við fréttamenn í dag.
Pep Guardiola ræðir við fréttamenn í dag. AFP

Aðeins 15 leikmenn Manchester City eru leikfærir fyrir viðureign liðsins á móti Hoffenheim en liðin eigast við í lokaumferð riðlakeppni Meistaradeildarinnar á Ehiad-vellinum í Manchester annað kvöld.

David Silva og Fernandinho hafa bæst á sjúkralistann en fyrir á honum voru Sergio Agüero, Kevin De Bruyne, Danilo, Benjamin Mendy og Claudio Bravo.

„Við erum með 15 leikmenn leikfæra svo ég get ekki gert mikið,“ sagði Pep Guardiola við fréttamenn í dag þegar hann var spurður að því hvort hann ætlaði að gera breytingar á liði sínu fyrir leikinn á móti Hoffenheim.

Manchester City er búið að tryggja sér sæti í 16-liða úrslitunum en liðið þarf í það minnsta eitt stig til að vinna riðilinn.

„Við erum að fara í mjög erfiðan leik. Við erum komnir áfram sem er mikilvægt en við viljum vinna riðilinn,“ sagði Guardiola.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert