Spánverjinn reyndi, David Silva, leikur ekki með ensku meisturunum í Manchester City vegna meiðsla.
Þetta kom fram á blaðamannafundi hjá Pep Guardiola, knattspyrnustjóra City, sem sem nú stendur yfir en City mætir Hoffenheim í Meistaradeildinni á morgun.
Silva er tognaður og ekki er búist við því að hann verði leikfær næstu vikurnar samkvæmt Guardiola.
Leikmannahópur Manchester City er afar vel skipaður en nú eru þrír stjörnuleikmenn á sjúkralistanum. Auk Silva eru það Sergio Aguero og Kevin de Bruyne og ef til vill sér þá kannski högg á vatni en City tapaði sínum fyrsta leik í deildinni á tímabilinu síðasta laugardag.