Salah skaut Liverpool áfram

Mohamed Salah fagnar marki sínu á Anfield í kvöld.
Mohamed Salah fagnar marki sínu á Anfield í kvöld. AFP

Liverpool og Tottenham tryggðu sér sæti í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu í kvöld. Liverpool vann 1:0 sigur gegn Napoli á Anfield og Tottenham náði 1:1 jafntefli gegn Barcelona á Camp Nou.

Það var enginn annar en Egyptinn Mohamed Salah sem skaut Liverpool áfram en þessi magnaði leikmaður skoraði eina mark leiksins á 34. mínútu þegar hann lék vörn Napoli grátt og setti svo boltann á milli fóta Ospina, markvarðar Napoli.

Sigur Liverpool var sanngjarn en liðið var miklu sterkari aðilinn. Liverpool fékk góð færi í seinni hálfleik til að skora fleiri mörk og sérstaklega fór Sadio Mané illa að ráði sínu. Undir lok leiksins kom Alisson markvörður Liverpool til bjargar þegar hann varði glæsilega skot frá Milik af stuttu færi en Napoli hefði farið áfram á kostnað Liverpool ef hann hefði skorað.

Í sama riðli vann Paris SG öruggan sigur gegn Rauðu stjörnunni í Belgrad 4:1. Paris SG vann þar með riðilinn en Liverpool hafnaði í öðru sæti.

Gríðarleg spenna var í B-riðlinum þar sem Inter og Tottenham börðust um að fylgja Barcelona áfram í 16-liða úrslitin. Lucas Moura var hetja Tottenham þegar hann jafnaði metin á 85. mínútu en áður hafði Inter jafnað metin gegn PSV. Liðin enduðu bæði með 8 stig en Tottenham fór áfram á betri markatölu.

Úrslitin í kvöld

A-riðill:

Club Brugge - Atlético Madrid, 0:0

Monaco - Borussia Dortmund, 0:2
Raphael Guerreiro 15., 88.

Lokastaðan: Dortmund 13, Atlético Madrid 13, Club Brügge 6, Monaco 1.

B-riðill:

Barcelona - Tottenham, 1:1
Ousmane Dembele 7. - Lucas Moura 85.

Inter - PSV Eindhoven, 1:1
Mauro Icardi 73. - Hirving Lozano 13.

Lokastaðan: Barcelona 14, Tottenham 8, Inter 8, PSV 2.

C-riðill:
Rauða stjarnan - Paris SG, 1:4
Marko Gobeljic 56. - Edinson Cavani 11., Naymar 40., Marquinhos 74., Kylian Mbappe 90.

Liverpool - Napoli 1:0
Mohamed Salah 34.

Lokastaðan: Paris SG 11, Liverpool 9, Napoli 9, Rauða stjarnan 4.

Mohamed Salah sækir að marki Napoli í kvöld.
Mohamed Salah sækir að marki Napoli í kvöld. AFP
Liverpool 1:0 Napoli opna loka
90. mín. Uppbótartíminn er að minnsta kosti 4 mínútur.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert