Borgar úr eigin vasa

Stephen Ireland er þekktasti leikmaður Bolton um þessar mundir.
Stephen Ireland er þekktasti leikmaður Bolton um þessar mundir. DAVID JONES

Ken Anderson, stjórnarformaður enska knattspyrnufélagsins Bolton Wanderers, ætlar að greiða starfsfólki félagsins launin fyrir nóvember úr eigin vasa. 

Leikmenn og annað starfsfólk fékk ekki greitt um mánaðamótin en til stendur að greiða launin næsta föstudag. 

Fjárhagsvandræði Bolton hafa verið áður í fréttum og tafir urðu á launagreiðslum á undirbúningstímabilinu. 

Bolton leikur nú í ensku b-deildinni og gæti verið á leið niður í c-deildina ef fram heldur sem horfir. Liðið er í 23. og næstneðsta sæti með aðeins fjóra sigra eftir tuttugu og eina umferð. 

Fjölmargir Íslendingar léku með Bolton á árum áður og var formaður KSÍ, Guðni Bergsson, fyrirliði liðsins í nokkur ár. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert