Mikið áfall fyrir Huddersfield

Aaron Mooy í baráttu við Alex Iwobi í leik Huddersfield …
Aaron Mooy í baráttu við Alex Iwobi í leik Huddersfield og Arsenal. AFP

Enska úrvalsdeildarliðið Huddersfield hefur orðið fyrir miklu áfalli en nú er ljóst að ástralski miðjumaðurinn Aaron Mooy verður frá keppni vegna meiðsla í hné fram í miðjan febrúar.

Mooy, sem er lykilmaður í liði Huddersfield, varð fyrir meiðslum í 1:0 tapi liðsins á móti Arsenal um síðustu helgi og það er ekki nóg með að hann missi af leikjum Huddersfield heldur spilar hann ekki með ástralska landsliðinu í Asíubikarnum í næsta mánuði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert