Tottenham seinkaði batanum

Glenn Hoddle
Glenn Hoddle AFP

Glenn Hoddle, fyrrverandi knattspyrnustjóri og fyrrverandi leikmaður Tottenham Hotspur, segir spennuna í kringum gengi liðsins í Meistaradeild Evrópu ekki hafa hjálpað bataferli sínu. 

Hoddle hneig niður í lok október þegar hann var við störf í sjónvarpi og kom í ljós að um hjartaáfall var að ræða. 

Hoddle er á ágætum batavegi en grínaðist á samskiptamiðlum með að spennuleikur Barcelona og Tottenham hefði seinkað batanum. En óskaði um leið sínum mönnum til hamingju með jafntefli sem tryggði Tottenham sæti í 16-liða úrslitum keppninnar. 



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert