Fjórði sigur West Ham í röð

Michail Antonio skorar annað mark West Ham.
Michail Antonio skorar annað mark West Ham. AFP

West Ham vann sinn fjórða sigur í röð í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta er liðið heimsótti lánlaust lið Fulham í lokaleik dagsins. Lokatölur urðu 2:0 og var sigur West Ham afar öruggur. 

Robert Snodgrass kom West Ham yfir á 17. mínútu og Michail Antonio bætti við öðru marki tólf mínútum síðar. West Ham var mun líklegra til að bæta við en Fulham að minnka muninn, en fleiri urðu mörkin ekki. 

West Ham er í níunda sæti deildarinnar með 24 stig og Fulham í botnsætinu með aðeins níu stig. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert