Yfirlýsing frá José Mourinho

Dagar Jose Mourinho hjá Manchester United eru taldir.
Dagar Jose Mourinho hjá Manchester United eru taldir. AFP

José Mourinho sendi rétt í þessu frá sér yfirlýsingu eftir brottrekstur sinn frá Manchester United í gær. Portúgalinn var rekinn eftir rúm tvö ár í starfi, en tímabilið hjá United er búið að vera ansi dapurt. 

„Ég hef verið gríðarlega stoltur að fá að vera hjá Manchester United frá fyrsta degi. Ég trúi því að allir stuðningsmenn félagsins viti það. Rétt eins og hjá öðrum félögum sem ég hef unnið hjá, kynntist ég dásamlegu fólki, sem verða áfram vinir mínir," skrifaði Mourinho. 

„Þið vitið að ég er fagmannlegur. Í hvert skipti sem einn kafli endar, sýni ég alla mína virðingu og ræði ekki gamla samstarfsmenn. Ég vona að pressan sýni mér virðingu og leyfi mér að lifa venjulegu lífi þangað til ég sný aftur í fótboltann. Gleðileg Jól," bætti hann við. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert