Bannað að tjá sig um United (myndskeið)

Mauricio Pochettino.
Mauricio Pochettino. AFP

Mauricio Pochettino knattspyrnustjóra Tottenham hefur verið bannað að tjá sig um áhuga Manchester United að fá hann til starfa fyrir næsta tímabil.

Á fréttamannafundi Tottenham í dag í aðdraganda leiks liðsins á móti Everton á laugardaginn vildi fréttamaður Sky Sports fá að heyra hvað Pochettino hefði að segja um áhuga Manchester United. Blaðafulltrúi Tottenham greip þá inní og sagði að stjórinn myndi ekki tjá sig en Pochettino þykir vera líklegastur til að taka við stjórastarfinu hjá Manchester United næsta sumar.

Myndskeið af fréttamannafundinum má sjá hér að neðan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert