Valencia vill fá „Chicharito“

Javier Hernandez í leik með West Ham.
Javier Hernandez í leik með West Ham. AFP

Spænska knattspyrnuliðið Valencia er á höttunum eftir Javier Hernandez framherja West Ham og vill fá hann til liðs við sig í janúarglugganum að því er fram kemur í spænska blaðinu Marca í dag.

Valencia hefur gengið illa að skora mörk á tímabilinu og hefur aðeins náð að skora 15 mörk í 17 leikjum í spænsku 1. deildinni. Forráðamenn liðsins vilja því styrkja sóknarsveit sína og er Hernandez einn þeirra leikmanna sem þeir hafa áhuga á að fá til liðs við sig.

„Chicharito“ hefur skorað 4 mörk í 14 leikjum með West Ham á leiktíðinni en Mexíkóinn hefur byrjað inni á í sjö leikjum Lundúnaliðsins í deildinni á tímabilinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert