Landsliðsmaður neytti kókaíns á skemmtistað

Leikmaðurinn er enskur landsliðsmaður.
Leikmaðurinn er enskur landsliðsmaður. AFP

Enska knattspyrnusambandið leitar nú að vitnum vegna landsliðsmanns sem neytti kókaíns á skemmtistað. Leikmanninum var hent út af staðnum í kjölfarið.

Atvikið átti sér stað er leikmaðurinn, sem spilar í ensku úrvalsdeildinni, hitti liðsfélaga sína eftir útileik. Líklegt þykir að knattspyrnusambandið muni úrskurða leikmanninn í allt að þriggja mánaða bann, verði sekt hans sönnuð. 

Gerist leikmenn sekir um fleiri brot, er hægt að úrskurða þá í lengri bönn. Enska knattspyrnusambandið segir brot af þessu tagi sjaldgæf, en hafi forgang hjá sambandinu. Leikmaðurinn hefur ekki verið nafngreindur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert