Fabinho hafnaði PSG fyrir Liverpool

Fabinho hefur spilað vel síðustu vikur.
Fabinho hefur spilað vel síðustu vikur. AFP

Brasilíski knattspyrnumaðurinn Fabinho hafnaði Frakklandsmeisturum PSG til að ganga í raðir Liverpool. Fabinho fór hægt af stað með Liverpool en hann hefur verið mikilvægur hlekkur hjá toppliði í ensku úrvalsdeildarinnar síðustu vikur. 

Liverpool borgaði Mónakó 44 milljónir punda fyrir Fabinho í sumar, en hann var orðaður við PSG stuttu áður. „Ég hugsaði ekki einu sinni um að fara eitthvað annað en til Liverpool,“ sagði Fabinho við franska miðilinn L'Equipe. 

„PSG sýndi mér mikinn áhuga og ég spjallaði við forráðamennina en að lokum gekk það ekki upp. Mér fannst vera kominn tími á að yfirgefa Frakkland og prófa eitthvað nýtt. Eftir að ég heyrði í Liverpool kom ekkert annað til greina,“ sagði Brasilíumaðurinn.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert