Dembélé floginn út til Hong Kong

Mousa Dembélé í leik Tottenham gegn Arsenal.
Mousa Dembélé í leik Tottenham gegn Arsenal. AFP

Tottenham er að missa miðjumanninn Mousa Dembélé úr sínum röðum en hann er floginn út til Hong Kong þar sem hann gengst undir læknisskoðun hjá kínverska liðinu Beijing Guaon.

Dembélé er 31 árs gamall miðjumaður sem hefur verið í herbúðum Tottenham frá árinu 2012. Belgíski landsliðsmaðurinn hefur komið við sögu í 10 leikjum með Tottenham í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert