Óvissa með þátttöku Jóhanns á morgun

Óvíst er með þátttöku Jóhanns Berg á morgun.
Óvíst er með þátttöku Jóhanns Berg á morgun. mbl.is/Kristinn Magnússon

Enn er óvíst hvort Jóhann Berg Guðmundsson verði klár í slaginn hjá Burnley er liðið mætir Watford í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta á morgun. 

Jóhann Berg meiddist í bikarleik gegn Barnsley þann 5. janúar og tók hann því ekki þátt í 2:1-sigrinum á Fulham um síðustu helgi. 

Íslenski landsliðsmaðurinn er búinn að glíma við nokkur smávægileg meiðsli á leiktíðinni og hefur hann spilað 17 af 22 leikjum Burnley í ensku úrvalsdeildinni til þessa á tímabilinu. 

Burnley er í 15. sæti deildarinnar með 21 stig, þremur stigum fyrir ofan fallsætin. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert