Siewert ráðinn stjóri Huddersfield

Frá viðureign Huddersfield og Manchester City í gær.
Frá viðureign Huddersfield og Manchester City í gær. AFP

Þjóðverjinn Jan Siewert hefur verið ráðinn knattspyrnustjóri enska úrvalsdeildarliðsins Huddersfield.

Samningur Siewert er til tveggja og hálfs árs og leysir hann landa sinn, David Wagner, af hólmi en hann sagði skilið við liðið í síðustu viku.

Siewert, sem er 36 ára gamall, hefur þjálfað varalið þýska liðsins Borussia Dortmund frá árinu 2017. Hans bíður erfitt verkefni því Huddersfield situr eitt og yfirgefið á botni ensku úrvalsdeildarinnar. Liðið er aðeins með 11 stig eftir 23 umferðir og er tíu stigum frá öruggu sæti í deildinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert