Staðfest að Sala var um borð

Emiliano Sala með treyju Cardiff.
Emiliano Sala með treyju Cardiff. Ljósmynd@Cardiffcity

Frönsk yfirvöld hafa endanlega staðfest það að argentínski framherjinn Emiliano Sala, sem enska úrvalsdeildarfélagið Cardiff keypti frá Nantes á laugardag, hafi verið um borð í flugvélinni sem leitað er að á Ermarsundi.

Sala var ásamt flugmanni í lítilli vél sem var á leið frá Nantes til Cardiff í gærkvöldi, en um klukkan 20.30 hvarf vélin af ratsjám. Vegna erfiðra skilyrða þurftu leitarmenn frá að hverfa í gærkvöldi, en leitað hefur verð á sjó og úr lofti í allan morgun. Ekkert hefur spurst til vélarinnar.

Sagt er að vélin hafi verið á flugi í um 5 þúsund metra hæð, en óskað eftir því að fá að lækka flugið. Síðast þegar vitað er til hennar var hún í rúmlega 2 þúsund metra hæð við Casqu­ets-vit­ann í Ermar­sundi.

Til­kynnt var um kaup Car­diff á Sala á laug­ar­dag, en hann varð þá dýr­asti leikmaður í sögu fé­lags­ins. Hann átti að mæta á sína fyrstu æfingu í morgun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert