Higuaín orðinn leikmaður Chelsea

Gonzalo Higuaín handsalar samninginn við Chelsea í kvöld.
Gonzalo Higuaín handsalar samninginn við Chelsea í kvöld. Ljósmynd/Twitter-síða Chelsea

Argentínski sóknarmaðurinn Gonzalo Higuaín er kominn til liðs við Chelsea að láni frá ítalska meistaraliðinu Juventus og gildir samningurinn út leiktíðina.

Higuaín gekk frá samningi við Lundúnaliðið í kvöld eftir að hafa gengist undir læknisskoðun en hann hefur leikið sem lánsmaður með AC Milan á leiktíðinni.

Hann er 31 árs gam­all og hef­ur leikið með Real Madrid, Ju­vent­us og Na­poli, en hjá síðastnefnda liðinu spilaði hann einmitt undir stjórn Maurizio Sarri sem nú stýrir Chelsea. Hann á að baki 75 leiki með arg­entínska landsliðinu og hef­ur í þeim skorað 31 mark.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert