Landsliðsmaðurinn Birkir Bjarnason gæti verið á förum frá enska B-deildarliðinu Aston Villa áður en félagaskiptaglugganum verður lokað um mánaðamótin.
Að því er fram kemur í enska blaðinu Expressandstar gætu Birkir og Scott Hogan báðir verið á förum frá Aston Villa en hvorugur var í leikmannahópi liðsins í sigurleiknum gegn Ipswich á laugardaginn.
Samkvæmt heimildum mbl.is er B-deildarliðið Reading, sem landsliðsmaðurinn Jón Daði Böðvarsson leikur með, eitt þeirra liða sem hafa áhuga á að fá Birki til liðs við sig.
Birkir hefur komið við sögu í 15 af 29 leikjum Aston Villa í deildinni á tímabilinu og hefur í þeim skorað tvö mörk.