Milwall í átta liða úrslit

Frá leik Millwall og AFC Wimbledon í dag.
Frá leik Millwall og AFC Wimbledon í dag. AFP

Millwall, sem leikur í ensku B-deildinni, er komið áfram í átta liða úrslit enska bikarsins í fótbolta eftir 1:0-sigur á útiveli gegn botnliði C-deildarinnar, Wimbledon. 

Bæði lið unnu óvænta sigra á úrvalsdeildarliðum í síðustu umferð; Millwall á Everton og Wimbledon hafði betur á móti West Ham. 

Það tók Millwall aðeins fimm mínútur að skora og það gerði Murray Wallace eftir sendingu frá Ryan Lonard og þar við sat.

Millwall er fyrsta liðið utan úrvalsdeildarinnar sem kemst í átta liða úrslitin í ár, en ljóst er að það verður í að minnsta kosti eitt til viðbótar þar sem Brentford og Swansea mætast á morgun. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert