Úrvalsdeildarliðið Wolves er komið áfram í átta liða úrslit enska bikarsins í fótbolta eftir nauman 1:0-útisigur á Bristol City sem leikur í B-deildinni.
Wolves var sterkari aðilinn í fyrri hálfleik og var 1:0-forysta úrvalsdeildarliðsins í hálfleik sanngjörn, en Ivan Cavaleiro skoraði sigurmarkið á 28. mínútu.
Bristol spilaði mun betur í síðari hálfleik en þrátt fyrir góð færi vildi boltinn ekki inn og Wolves verður í pottinum er dregið verður í átta liða úrslitin.