Crystal Palace fjarlægðist fallsætin

Wilfried Zaha skoraði tvö.
Wilfried Zaha skoraði tvö. AFP

Crystal Palace vann afar góðan 4:1-útisigur á Leicester í lokaleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Með sigrinum fjarlægðist Palace fallsætin og er nú aðeins tveimur stigum á eftir Leicester um miðja deild. 

Michy Batshuayi kom Palace yfir á 40. mínútu með sínu fyrsta marki fyrir félagið síðan hann kom til þess frá Cheslea á lánssamningi í janúar. Það reyndist eina mark hálfleiksins. 

Jonny Evans jafnaði metin á 64. mínútu en sex mínútum síðar kom Wilfried Zaha Palace yfir á nýjan leik. Luka Milivojevic breytti stöðunni í 3:1 með marki úr víti á 81. mínútu og Zaha skoraði sitt annað mark í uppbótartíma og gulltryggði góðan útisigur. 

Leicester í er 12. sæti deildarinnar með 32 stig og Crystal Palace í 13. sæti með 30 stig. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert