Jóhann Berg Guðmundsson og samherjar hans hjá Burnley unnu glæsilegan 2:1-sigur á Tottenham í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Ashley Barnes skoraði sigurmarkið eftir undirbúning hjá Jóhanni Berg.
Ekkert var skorað í fyrri hálfleik en Chris Wood kom Burnley yfir á 57. mínútu. Átta mínútum síðar jafnaði Harry Kane og var staðan 1:1 þegar Jóhann Berg kom inn á sem varamaður á 80. mínútu
Jóhann var ekki ekki lengi að stimpla sig inn því þremur mínútum síðar lagði hann upp sigurmarkið á Barnes. Burnley er nú með 30 stig í 13 sæti en Tottenham í þriðja sæti með 60 stig.
Burnley | 2:1 | Tottenham | Opna lýsingu Loka | |
---|---|---|---|---|
90. mín. Leik lokið Glæsilegur sigur hjá Jóhanni og félögum! | ||||
Augnablik — sæki gögn... |