Stoðsendingakóngur Burnley

Jóhann Berg Guðmundsson.
Jóhann Berg Guðmundsson. AFP

Jóhann Berg Guðmundsson átti stóran þátt í góðum sigri Burnley gegn Tottenham í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag eins og áður hefur komið fram hér á mbl.is.

Jóhann Berg kom inn á sem varamaður á 80. mínútu og lagði upp sigurmarkið sem Ashley Barnes skoraði á 83. mínútu. Þetta var sjötta stoðsending hans á tímabilinu.

Þetta var 15. stoðsendingin hjá Jóhanni Berg frá því hann hóf að spila með Burnley og hefur hann gefið níu fleiri en næsti maður í liðinu.

Jóhann Berg fékk góða dóma fyrir frammistöðu sína en hann fékk til að mynda 7 í einkunn hjá Sky Sports.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert