Gylfi Þór í liði vikunnar

Gylfi Þór Sigurðsson fagnar marki sínu gegn Cardiff.
Gylfi Þór Sigurðsson fagnar marki sínu gegn Cardiff. AFP

Gylfi Þór Sigurðsson er í liði 28. umferðar í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu hjá vefmiðlinum goal.com en Gylfi átti flottan leik og skoraði tvö mörk í 3:0 útisigri Everton gegn Cardiff í fyrrakvöld.

Gylfi hefur skorað 11 mörk í deildinni á tímabilinu og með mörkunum tveimur á móti Cardiff er hann orðinn markahæsti Íslendingurinn í sögu ensku úrvalsdeildarinnar með 57 mörk.

Arsenal á þrjá menn í liði vikunnar en „Skytturnar“ voru í stuði í gær og burstuðu Bournemouth á heimavelli 5:1.

Lið umferðarinnar lítur þannig út:

Markvörður: Alisson (Liverpool).

Varnarmenn: Trent Alexander-Arnold (Liverpool), David Luiz (Chelsea), Virgil van Dijk (Liverpool), Oleksandr Zinchenko (Manchester City).

Miðjumenn: Henrik Mkhitaryan (Arsenal), Mesut Özil (Arsenal), Gylfi Þór Sigurðsson (Everton).

Sóknarmenn: Sadio Mané (Liverpool), Dominic Calvert-Lewin (Everton), Pierre-Emerick Aubameyang (Arsenal).

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert