Rakel mætir West Ham í undanúrslitum

Rakel Hönnudóttir hefur látið mikið að sér kveða í ensku …
Rakel Hönnudóttir hefur látið mikið að sér kveða í ensku bikarkeppninni. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Rakel Hönnudóttir og samherjar hennar í Reading fá heimaleik gegn West Ham í undanúrslitum ensku bikarkeppninnar í knattspyrnu en dregið var til þeirra rétt í þessu.

Rakel skoraði sigurmark Reading gegn Manchester United í framlengdum leik liðanna í átta liða úrslitum um helgina og hún hafði áður gert sigurmark gegn Birmingham í keppninni.

Manchester City og Chelsea mætast í hinum undanúrslitaleiknum en báðir fara þeir fram 14. apríl. City er efst í úrvalsdeildinni, Chelsea er í þriðja sæti, West Ham í sjötta og Reading í sjöunda sætinu. Í síðasta deildaleik tapaði Reading einmitt fyrir Manchester City, 3:4, í hörkuleik og þar á undan 1:2 fyrir West Ham á heimavelli.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert