Enn og aftur skorar Gylfi gegn United

Gylfi Þór Sigurðsson fagnar marki sínu gegn United á Goodison …
Gylfi Þór Sigurðsson fagnar marki sínu gegn United á Goodison Park í dag. AFP

Gylfa Þór Sigurðssyni þykir ekki leiðinlegt að mæta Manchester United en hann var rétt í þessu að skora sitt fimmta mark á ferlinum gegn United sem er í heimsókn á Goodison Park.

Everton er 2:0-yfir en Richarlison kom heimamönnum yfir snemma leiks áður en Gylfi tvöfaldaði forystuna á 28. mínútu með laglegu marki utan teigs eftir snögga skyndisókn. Hin fjögur mörk Gylfa gegn United komu öll á Old Trafford og er þetta því hans fyrsta mark á heimavelli gegn Manchester liðinu.

Þá hefur hann átt þrjár stoðsendingar í leikjum sínum gegn United en hann hefur ekki átt beinan þátt í fleiri mörkum gegn neinu öðru liði.

Gylfi skoraði þarna sitt 13. mark í deildinni í vetur og bætir því enn sinn besta árangur á einu tímabili í deildinni. Þetta er hans 59. mark í úrvalsdeildinni frá upphafi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert