Nær öruggt þykir að belgíski landsliðsmaðurinn Kevin de Bruyne hjá Manchester City missi af leik sinna manna gegn Manchester United þegar liðin eigast við í ensku úrvalsdeildinni á Old Trafford á miðvikudagskvöldið.
De Bruyne tognaði í læri í leiknum gegn Tottenham á laugardaginn og þurfti að fara af velli eftir 38 mínútur.
Með sigri gegn United kemst City á topp deildarinnar. Liverpool, sem vann Cardiff á útivelli í gær, er í toppsætinu með 88 stig og á þrjá leiki eftir en City er með 86 stig og á fjóra leiki eftir.