Staðfesti að De Bruyne verður ekki með

Pep Guardiola, stjóri Manchester City.
Pep Guardiola, stjóri Manchester City. AFP

Pep Guardiola knattspyrnustjóri Manchester City staðfesti á fréttamannafundi nú í hádeginu að belgíski landsliðsmaðurinn Kevin de Bruyne verði ekki með í leiknum gegn Manchester United á Old Trafford annað kvöld.

De Bruyne meiddist á læri í sigurleik City gegn Tottenham á laugardaginn og þurfti að fara af velli í fyrri hálfleik.

„Við munum sjá næstu daga hvort hann verður betri en hann verður ekki með á morgun,“ sagði Guardiola.

Með sigri gegn United annað kvöld tyllir Manchester City sér á topp deildarinnar en liðið er tveimur stigum á eftir Liverpool en á leikinn til góða á Old Trafford.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert