Krafta Pulis ekki óskað

Tony Pulis.
Tony Pulis. AFP

Knattspyrnustjórinn gamalkunni, Tony Pulis, fær ekki nýjan samning hjá Middlesbrough sem leikur í ensku b-deildinni í knattspyrnu. 

Samningur Pulis rennur raunar út á næstunni en félagið hefur sem sagt ákveðið að fara ekki í viðræður við Pulis um áframhaldandi samstarf.  

Pulis hefur verið hjá Boro síðan í desember 2017 en liðið hafnaði í sjöunda sæti í b-deildinni á leiktíðinni sem er að ljúka. 

Pulis er 61 árs og hefur verið stjóri á Bretlandseyjum frá 1992 þegar Bournemouth gaf honum tækifæri. Hefur hann stýrt níu liðum á ferlinum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert