Bernardo Silva valinn leikmaður ársins

Bernardo Silva með einn af bikurnum sem Manchester City vann …
Bernardo Silva með einn af bikurnum sem Manchester City vann á leiktíðinni. Ljósmynd/Manchester City

Portúgalski miðjumaðurinn Bernardo Silva var valinn leikmaður ársins af stuðningsmönnum Manchester City .

Silva átti frábært tímabil með City, sem varð þrefaldur meistari. Portúgalinn lék 51 leik með Manchester-liðinu á tímabilinu. Hann skoraði 13 mörk og gaf 13 stoðsendingar.

Rúmlega 62 þúsund manns tóku þátt í valinu og hlaut Silva 48% atkvæðanna en hann hafði betur í baráttunni við Raheem Sterling og Sergio Agüero.

Silva tók á móti viðurkenningu sinni í gær í sigurhátíð Manchester City en leikmenn liðsins óku um götur Manchester-borgar í opnum strætisvagni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert