Firmino byrjaður að æfa á ný

Roberto Firmino.
Roberto Firmino. AFP

Brasilíski sóknarmaðurinn Roberto Firmino er byrjaður að æfa með Liverpool-liðinu á nýjan leik en hann hefur átt við meiðsli að stríða síðustu vikurnar.

Firmino hefur ekki spilað í síðustu þremur leikjum Liverpool en hann tók þátt í fyrstu æfingu Liverpool-liðsins á Marbella á Spáni í dag en þangað hélt liðið í gær til undirbúnings fyrir úrslitaleikinn á móti Tottenham í Meistaradeildinni sem fram fer á Wanda Metropolitano-leikvanginum í Madrid 1. júní.

Firmino var síðast í eldlínunni með Liverpool 1. maí þegar liðið tapaði fyrir Barcelona 3:0 í fyrri undanúrslitaleiknum í Meistaradeildinni en Liverpool vann ævintýralegan 4:0 sigur í seinni leiknum á Anfield og tryggði sér farseðilinn í úrslitaleik Meistaradeildarinnar annað árið í röð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert