Ítalska knattspyrnufélagið Inter Mílanó hefur boðið Manchester United að fá Mauro Icardi, framherja liðsins, í skiptum fyrir Romelu Lukaku en það er Gazzetta dello Sport sem greinir frá þessu.
Lukaku hefur verið orðaður við brottför frá United í allt sumar og þá er Icardi í svipaðri stöðu hjá Inter Mílanó eftir að hafa verið sviptur fyrirliðabandinu hjá félaginu í vetur en Icardi skoraði 17 mörk í 37 leikjum fyrir félagið á síðustu leiktíð.
Icardi kom til Inter frá Sampdoria árið 2013 og hefur skorað 124 mörk í 219 leikjum fyrir félagið en hann er 26 ára gamall. Lukaku átti ekki fast sæti í byrjunarliði United á leiktíðinni en United vill fá í kringum 75 milljónir punda fyrir hann.