Mata áfram í herbúðum United

Juan Mata verður áfram í herbúðum United.
Juan Mata verður áfram í herbúðum United. AFP

Spænski knattspyrnumaðurinn Juan Mata verður áfram í herbúðum Manchester United eftir viðræður við félagið í dag. Mata skrifaði undir nýjan þriggja ára samning við félagið. 

Að sögn Sky ræddi Mata við forráðamenn Barcelona, en komst ekki að samkomulagi við spænska stórliðið og framlengdi hann því við United. Mata hefur unnið enska bikarinn, deildabikarinn og Evrópudeildina með liðinu síðan hann kom frá Chelsea árið 2014. 

Mata spilaði 32 leiki á síðustu leiktíð og skoraði í þeim sex mörk. Hann hefur alls spilað 218 sinnum fyrir United og skoraði 45 mörk. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert