Tilboði Arsenal hafnað

Kieran Tierney er eftirsóttur.
Kieran Tierney er eftirsóttur. AFP

Celtic hefur hafnað 15 milljón punda tilboði frá Arsenal í varnarmanninn Kieran Tierney en Sky Sports greinir frá þessi.

Vinstri bakvörðurinn er einn af lykilmönnum skosku meistaranna en hann lék þó aðeins 21 leik í vetur vegna meiðsla. Hann er 22 ára gamall og á 12 landsleiki að baki með Skotlandi.

Búist er við því að Arsenal muni leggja fram bætt tilboð á næstu dögum en Napoli á Ítalíu er einnig sagt á höttunum eftir Tierney sem er samningsbundinn Celtic til 2023.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert