Brasilískur framherji á leið til Arsenal

Unai Emery, knattspyrnustjóri Arsenal.
Unai Emery, knattspyrnustjóri Arsenal. AFP

Arsenal hefur náð samkomulagi um kaup á brasilíska sóknarmanninum Everton frá brasilíska liðinu Gremio.

Fox Sports greinir frá þessu en Arsenal hefur samþykkt að greiða Gremio 36 milljónir punda fyrir Everton, sem er 23 ára gamall.

Everton hefur spilað með Gremio frá árinu 2014 og hefur skorað 28 mörk í 114 deildarleikjum og þá hefur skorað 3 mörk í 12 leikjum með brasilíska landsliðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert