City fór létt með West Ham

David Silva að skora fyrir Manchester City í leiknum gegn …
David Silva að skora fyrir Manchester City í leiknum gegn West Ham í dag. AFP

Englandsmeistarar Manchester City fögnuðu 4:1 sigri gegn West Ham þegar liðin áttust við í síðari leik dagsins í Asíubikarnum í fótbolta í Nanj­ing í Kína í dag.

Mark Noble fyrirliði West Ham kom sínum mönnum í forystu á 26. mínútu með marki úr vítaspyrnu. David Silva jafnaði metin fyrir City á 33. mínútu og þremur mínútum síðar kom Lukas Nmech Englandsmeisturunum yfir með marki úr vítaspyrnu.

Raheem Sterling bætti við þriðja markinu við á 59. mínútu og hann var aftur á ferðinni á 72. mínútu. Manchester City mætir þar með Wolves í úrslitaleik Asíubikarsins á laugardaginn en Úlfarnir burstuðu Newcastle fyrr í dag 4:0.

Leikurinn var sýndur í beinni útsendingu á Síminn Sport sem sýnir úrslitaleikinn ásamt leiknum um þriðja sætið á laugardaginn. Leikur Newcastle og West Ham hefst klukkan 10 en úrslitaleikurinn á milli Manchester City og Wolves hefst klukkan 12.30.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert