Mendy verður frá fyrstu vikurnar

Benjamin Mendy.
Benjamin Mendy. AFP

Knattspyrnumaðurinn Benjamin Mendy verður ekki með Englandsmeisturum Manchester City fyrstu vikurnar er úrvalsdeildin hefst í næsta mánuði en hann er enn að jafna sig af meiðslum.

Mendy gekkst undir aðgerð á hné í maí og hefur ekki enn byrjað að æfa á nýjan leik. Hann hefur þurft að glíma við þrálát hnémeiðsli og aðeins tekist að byrja 14 deildarleiki undanfarin tvö ár hjá City eða þegar hann gekk til liðs við félagið frá Mónakó í Frakklandi.

Meistararnir eru þó ekki á flæðiskeri staddir. Oleksandr Zinchenko leysti stöðu vinstri bakvarðar með stakri prýði á síðustu leiktíð og þá keypti félagið spænska leikmanninn Angelino frá PSV í Hollandi í sumar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert