Ítalska félagið Roma hefur áhuga á að fá sóknarmanninn Alexis Sánchez að láni fyrir komandi tímabil en hann hefur átt erfitt uppdráttar hjá Manchester United á Englandi.
Sánchez kom til United frá Arsenal í janúar á síðasta ári en honum hefur gengið illa að festa sig í sessi á Old Trafford þrátt fyrir að vera einn launahæsti leikmaður heims. Sánchez er nú að jafna sig af meiðslum og tekur líklega ekki þátt í fyrsta leik United í ensku úrvalsdeildinni á morgun.
Forráðamenn Roma hafa sett sig í samband við United um að fá kappann að láni en United er sagt ólíklegt til að samþykja slíkan samning, sérstaklega þar sem búið er að loka félagsskiptaglugganum á Englandi og því of seint að kaupa leikmann í staðinn.