Nýliðarnir nældu í fyrsta sigurinn

John Lundstram skoraði sigurmarkið.
John Lundstram skoraði sigurmarkið. Ljósmynd/Sheffield United

Nýliðar Sheffield United eru komnir á blað í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. Liðið vann 1:0-sigur á Crystal Palace á heimavelli sínum í fyrri leik dagsins í deildinni. 

Eftir markalausan fyrri hálfleik skoraði miðjumaðurinn John Lundstram sigurmarkið á 47. mínútu. Eftir skemmtilega sókn upp vinstri kantinn barst boltinn á Lundstram sem kláraði vel.

Sheffield-liðið hefur farið vel af stað í deildinni og er liðið með fjögur stig eftir tvo leiki. Crystal Palace er aftur á móti bara með eitt stig. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert