Forster að snúa aftur til Celtic

Fraser Forster er að ganga til liðs við Celtic í …
Fraser Forster er að ganga til liðs við Celtic í Skotlandi. AFP

Fraser Forster, markmaður enska knattspyrnufélagsins Southampton, er á leið til skoska úrvalsdeildarfélagsins Celtic en það eru enskir fjölmiðlar sem greina frá þessu. Forster er 31 árs gamall en hann lék með liðinu á árunum 2012 til ársins 2014.

Þá eyddi hann tímabilinu 2010-2011 og 2011-2012 á láni hjá félaginu og hann þekkir því vel til í Skotlandi. Forster hefur ekki átt fast sæti í liði Southampton frá því Ralph Hasenhüttl tók við stjórnartaumunum hjá Southampton í desember 2018.

Southampton endaði í sextánda sæti ensku úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð og rétt slapp við fall en liðið hefur ekki farið vel af stað á þessari leiktíð og er stigalaust í nítjánda sæti deildarinnar eftir fyrstu tvo leiki sína gegn Burnley og Liverpool.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert