Mörkin í leik Arsenal og Tottenham (myndskeið)

Það var mikið fjör á Emirates Stadium í London í gær þegar Arsenal og Tottenham skildu jöfn í lokaleik 4. umferðar ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu.

Tottenham komst í 2:0 með mörkum frá Cristian Eriksen og Harry Kane en Alexandre Lacazette og Pierre-Emerick Aubameyang jöfnuðu metin fyrir Arsenal í stórskemmtilegum Lundúnaslag.

Mörkin og helstu tilþrifin í leiknum má sjá í meðfylgjandi myndskeiði.

Pierre-Emerick Aubameyang fagnar marki sínu gegn Tottenham.
Pierre-Emerick Aubameyang fagnar marki sínu gegn Tottenham. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert