Paul Pogba og Marcus Rashford verða báðir í leikmannahópi Manchester United í kvöld þegar liðið fær Arsenal í heimsókn á Old Trafford í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.
Vefur Manchester Evening News greinir frá þessu. Báðir eru sagðir vera búnir að hrista af sér meiðslin en hægri bakvörðurinn Aaron Wan-Bissaka mun væntanlega verða fjarri góðu gamni sem og vinstri bakvörðurinn Luke Shaw.
Öruggt er að franski sóknarmaðurinn Anthony Martial spilar ekki en hann hefur verið frá keppni í síðustu leikjum Manchester-liðsins vegna meiðsla í læri.