Ótrúlegt mark var skorað í Northern Premier League, sjöundu efstu deild enska fótboltans, á dögunum þegar Basford United sótti heim lið FC United of Manchester.
Síðarnefnda félagið var stofnað af stuðningsmönnum Manchester United árið 2005 og var beint gegn kaupum bandarísku Glazer-fjölskyldunnar á félaginu. Það hefur leikið í neðri deildum Englands síðan en féll úr sjöttu deild niður í þá sjöundu síðasta vor.
Leikmaður Basford skoraði með skalla af eigin vallarhelmingi eins og sjá má á myndskeiðinu en tilburðir markvarðar Manchester-liðsins eru kannski ekki til fyrirmyndar! Basford fór heim með öll þrjú stigin eftir 3:1 sigur þegar upp var staðið. Basford er í öðru sæti deildarinnar en FC United er í tíunda sæti af 22 liðum.
Not sure what the keeper is doing here but it is still a wonderful header ... https://t.co/tik2Y0UOxH
— Marcus Christenson (@m_christenson) October 16, 2019