Gylfi Þór Sigurðsson skoraði sitt 60. mark í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag eins og áður hefur komið fram hér á mbl.is.
Gylfi kom inná undir lok leiks Everton og West Ham og skoraði stórglæsilegt mark þegar hann innsiglaði 2:0-sigur sinna manna.
Þetta var 21. markið sem Gylfi skorar fyrir utan vítateig í ensku úrvalsdeildinni en aðeins einn leikmaður hefur skorað fleiri. Það er fyrrverandi liðsfélagi Gylfa hjá Tottenham, Daninn Christian Eriksen sem hefur skorað 22 mörk með skotum utan vítateigs.