Þrumufleygur Gylfa á Goodison Park (myndskeið)

Gylfi Þór Sigurðsson er búinn að skora 60 mörk í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu en þeim áfanga náði hann í dag með því að skora glæsilegt mark í 2:0-sigri Everton á West Ham á Goodison Park.

Gylfi byrjaði leikinn á varamannabekknum og kom ekki inn fyrr en á 87. mínútu en var svo ekki lengi að stimpla sig inn með marki sem sjá má í spilaranum hér að ofan.

Roberto kemur engum vörnum við í marki West Ham er …
Roberto kemur engum vörnum við í marki West Ham er Gylfi skorar markið glæsilega. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert