Hermann aðstoðar Campbell hjá Southend

Hermann Hreiðarsson.
Hermann Hreiðarsson. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Sol Campbell hefur verið ráðinn knattspyrnustjóri enska C-deildarfélagsins Southend United og Hermann Hreiðarsson, fyrrverandi landsliðsfyrirliði, verður aðstoðarmaður hans en félagið staðfestir þetta á heimasíðu sinni.

Kevin Bond hætti með Sout­hend í sept­em­ber og var án knattspyrnustjóra þar til nú. Her­mann var aðstoðarmaður hjá Camp­bell hjá Macc­les­field Town í stutt­an tíma. Þá mun Andy Cole, fyrr­ver­andi fram­herji Manchester United, einnig koma inn í þjálf­arat­eymi fé­lags­ins. Camp­bell hef­ur verið án starfs síðan hann hætti sem stjóri D-deild­arliðsins Macc­les­field Town í ág­úst.

Gengi Sout­hend United á þess­ari leiktíð hef­ur verið af­leitt en liðið er í 22. sæti eða næst neðsta sæti ensku C-deild­ar­inn­ar með 5 stig. Liðið hef­ur tapað 10 leikj­um, unnið einn og gert tvö jafn­tefli í fyrstu þrett­án leikj­um sín­um.

Sol Campbell og Hermann Hreiðarsson á golfmóti þess síðarnefnda, Herminator …
Sol Campbell og Hermann Hreiðarsson á golfmóti þess síðarnefnda, Herminator golfmótinu, árið 2015.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert