Manchester United hefur endurheimt þrjá leikmenn úr meiðslum fyrir leik liðsins á útivelli gegn nýliðum Sheffield United í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu sem fram fer á sunnudaginn.
Luke Shaw, Axel Tuanzebe og Nemanja Matic voru allir mættir á æfingu Manchester-liðsins í dag en þeir hafa verið frá keppni síðustu vikur sökum meiðsla.
Paul Pogba er hins vegar ekki klár í slaginn en vonir standa til að hann verði orðinn leikfær þegar United og Manchester City mætast í grannaslag 7. desember.
Fjórir leikmenn eru til viðbótar á sjúkralistanum en það eru þeir Diego Dalot, Scott McTominay, Timothy Fosu-Mensah og Eric Bailly.