Samkvæmt enskum fjölmiðlum hefur Manchester United orðið fyrir áfalli fyrir leikinn gegn Tottenham í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld en ljóst þykir að franski sóknarmaðurinn Anthony Martial er ekki leikfær.
Martial fór af velli eftir 82 mínútur gegn Aston Villa á sunnudaginn og hann er sagður vera mjög tæpur vegna vöðvatognunar. Martial hefur leikið vel með United að undanförnu og verið liðinu mikilvægur á erfiðum kafla.