Hvað gerir Mourinho á Old Trafford? (myndskeið)

Manchester United fær Tottenham í heimsókn í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta klukkan 19:30 í kvöld. José Mourinho, núverandi stjóri Tottenham, snýr aftur á Old Trafford en hann var rekinn frá United í desember á síðasta ári. 

Tottenham er í sjötta sæti deildarinnar með 20 stig og Manchester United í tíunda sæti með 18 stig. 

Í spilaranum hér fyrir ofan má sjá upphitun fyrir leikinn, en hann verður í beinni textalýsingu á mbl.is og beinni útsendingu á Símanum sport. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert